Fjölskyldan ehf.
Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.
Fjölskyldan ehf.
Áramótaheit og væntingastjórnun
Magga Pála, Móey Pála, Adeline Brynja og Katla komu í hljóðver og gerðu upp árið 2020. Þær ræddu það sem skiptir máli og hvað væntingastjórnun er mikilvæg þegar beðið er eftir nýju ári. Þær ræddu covid-19 og áhrif þess á árið sem er að líða og síðast en ekki síst áhrif sem veiran hafði á fjölskyldulífið. Katla óskar margs á nýju ári og er þakklát fyrir margt, eins og t.d. fæðingu litlu frænku, hennar Adeline Brynju.
Margrét Pála setti sér áramótaheit og deilir því með hlustendum.
Að lokum voru þær allar sammála um að iðka gleði og bros mun meira á nýju ári, það er nefninlega svo bráðhollt og sérstaklega smitandi. Við getum valið hvað við viljum og við getum valið hvernig við ætlum að takast á við daginn; í gleði eða fýlu. Adeline Brynja fer með lokaorðin í þessum síðasta þætti ársins.
Fjölskyldan ehf á facebook
Fjölskyldan ehf á Instagram
Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com
Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.
Fjölskyldan ehf á Instagram
Netfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com