Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Hvernig verð ég betri samningamaður? - Aðalsteinn Leifsson
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 35
Aðalsteinn Leifsson starfar í dag sem ríkissáttasemjari og lektor við Háskólann í Reykjavík.
Hann skrifaði bókina Samningatækni með það að markmiði að bókin gæti orðið hagnýtt tæki við samninga og í daglegu lífi.
Við ræðum í þessu viðtali:
- Hvað gerir ríkissáttasemjari?
- Hvaða þættir skipta máli svo aðilar séu sáttir við samninga?
- Samningar er eitthvað sem við fáumst við alla daga og eitt mikilvægasta form ákvörðunartöku.
- Af hverju við erum ekki eins góðir samningamenn og við teljum okkur vera.
- Af hverju stærsta hindrunin sem við mætum í samningum er innra með okkur.
- Hvers vegna undirbúningur er sá þáttur sem mestu máli skiptir.
- Við ræðum ólíka samninga og samningatækni þegar kemur að íbúðakaupum, kaupum bíl eða þegar við ráðum okkur í vinnu.
- Hættan þegar við verðum ástfanginn af einni lausn og mikilvægi þess að hafa fleiri valmöguleika. Þar skaðast samningsstaða okkar.
- Af hverju fleiri valmöguleikar skipta svo miklu máli þegar við semjum og af hverju við eigum alltaf fleiri valmöguleika.
- Hvernig eigum við að undirbúa okkur fyrir laun?
- Af hverju okkur þykir erfiðara að semja fyrir okkur sjálf en aðra.
- Af hverju það skiptir lykilmáli á að við skiljum gagnaðilann í samningum.
Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða viðtali.
Bók Aðalsteins Samningatækni er hægt að fá hér.
Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.