Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Fjárfestingar og Fortuna Invest - Aníta Rut Hilmarsdóttir
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 37
Aníta Rut Hilmarsdóttir er ein þriggja kvenna sem starfa sem verðbréfamiðlarar.
Starf sem hún segir vera mjög spennandi og krefjast þess að maður sé sífellt að fylgjast með mörkuðum og fréttum af þeim. Hún stofnaði fræðsluvettvanginn Furtuna Invest á Instagram í ársbyrjun 2021 ásamt Rakel Evu Sævarsdóttur og Rósu Kristinsdóttur en þær vinna allar í fjármálageiranum. Meginmarkmið Fortuna Invest er að auka fjölbreytileika á fjármálamarkaði og stuðla að þátttöku kvenna á því sviði.
Í þessu viðtali ræðum við:
- Hvað felst í starfi verðbréfamiðlara?
- Vöxt Fortuna Invest.
- Fjárfestingar kvenna og af hverju konur fjárfesta miklu minna en karlar.
- Hvort konur séu áhættumeðvitaðri frekar en en áhættufælnari.
- Af hverju mikilvægt er að konur taki ríkari þátt í fjárfestingum
- Hvernig við flest séum fjárfestar.
- Nauðsyn þess að dreifa áhættu og minnka áhættu.
- Hvernig umræðan og áhugi almennings og kvenna sé að aukast.
- Muninn í fjárfestingum í stökum félögum eða sjóðum.
- Mikilvægi þess að dreifa eignasafninu þegar kemur að fjárfestingum.
Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða spjalli.
Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson
Framleitt af: Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.