Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Eikonomics, hugleiðingar hagfræðings með athyglisbrest - Eiríkur Ragnarsson.
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 41
Eiríkur Ragnarsson er hagfræðingur sem hefur skrifað pistla undir heitinu Eikonomics. Hann var að gefa út bók með sama heiti og er til umfjöllunar í þessu viðtali.
Í þessu viðtali ræðum við fjölmargt áhugavert tengdu hagfræði, má þar nefna:
- Fjárfestingar á tímum Covid, Gamestop og Robinhood
- Á hverju maður á að fjárfesta í leiðinlegum hlutum
- Hvaðan þetta nafn Eikonomics kom til?
- Skattlagning á arfi og hver áhrifin voru þegar Dick Cheney nefndi skattinn dauðaskattinn
- Af hverju sérfræðingar eru ekki góðir að miðla þekkingu sinni á mannamáli og tilraun bókarinnar til að nálgast það vandamál
- Hvernig Freakonomics og Tim Harford voru Eiríki innblástur til að skýra flókna hluti
- Muninn á Macro og Micro hagfræði
- Hvernig hegðun hefur áhrif á mörkuðum og þá um atferlishagfræði
- Hvernig höldum við hagvexti gangandi um leið og við komum í veg fyrir að jörðin tortímist
Þetta og margt fleira tengt hagfræði í þessu áhugaverða viðtali
Hægt er að nálgast bók Eiríks hér á vef forlagsins