Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Að lesa ársreikninga - Silja Ósvaldsdóttir
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 45
Silja Dögg Ósvaldsdóttir er framkvæmdastjóri bókhaldsfyrirtækisins Fastlands sem sérhæfir sig í öllum hliðum fjármála fyrir atvinnurekstur. Fyrirtækið sinnir bókhaldsþjónustu og útbýr ársreikninga fyrir mörg hundruð fyrirætki á hverju ári.
Í þessum þættir ræðum við:
- Hvernig nálgast ég ársreikninga á netinu?
- Hvað er ársreikningur?
- Hvernig les maður úr ársreikningi?
- Hvað segir ársreikningur manni um rekstur fyrirtækja?
- Hver er munurinn á rekstrarreikningi og ársreikningi?
- Hvaða tölur skipta mestu máli í ársreikningi?
- Hvernig reiknar maður út hagnað fyrirtækja?
- Hvað eru skuldir og eignir í ársreikningi?
- Hvernig getur ársreikningur hjálpað mér að meta virði fyrirtækis?
- Hægt er að sækja ársreikninga sem eru til umfjöllunar í þessu viðtali á vefnum leip.is
Leitin að peningunum er framleidd af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.