Leitin að peningunum
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.
Leitin að peningunum
Raggi Bjarna var fyrsti fjármálaráðgjafinn - Páll Óskar Hjálmtýsson
•
Umboðsmaður skuldara
•
Episode 46
Páll Óskar Hjálmtýsson er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Hann hefur skemmt Íslendingum frá árinu 1991 og gengið í gegnum ýmislegt þegar fjármál eru annars vegar.
Í þessum þættir ræðum við:
- Ráðleggingarnar frá Ragga Bjarna
- Mikilvægi þess að fá ekki leið á slögurunum sínum
- Breyttan heim listamanna í Covid
- Tekjurnar af plötusölu og Spotify
- Fjárhagsvandræðin upp úr aldamótum
- Hvort peningar séu rót alls ills
- Mikilvægi þess að finna sér starfsvettvang sem maður nýtur
- Mikilvægi þess að vera dugleg/ur
- Hvernig Páll Óskar verðleggur listina sína
Og margt fleira.
Leitin að peningunum er framleidd af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.