Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

Eyvör: Viltu styrk til að bæta netöryggi?

Sverrir Geirdal Season 3 Episode 30

Eyvör hleypir netöryggisstyrk af stokkunum!  Allt að 9 milljónir í styrk og 80% verkefnis fjármagnað – umsóknarfrestur til 1. Október 2024.

Daði Gunnarsson sérfræðingur hjá Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu og verkefnastjóri Eyvarar og Eyjólfur Eyfells sérfræðingur hjá Rannís og umsjónarmaður Netöryggisstyrkja komu í heimsókn til að ræða málin.

Förum yfir tilhögun styrkjanna og þau skilyrði og áherslur sem þar liggja að baki.

Kynnumst Eyvöru sem er NCC (National cooperation Center) í netöryggi á Íslandi og hluti af neti slíkra setra í Evrópu.

Ákaflega fróðlegur þáttur um það sem er að gerast í netöryggismálum á Íslandi og hvernig Evrópa hyggst bæta stöðu sína í málaflokknum.

Hlustiði!

www.audna.is - www.edih.is