Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins

Yoga Nidra djúpslökun

July 11, 2024 Krabbameinsfélagið Season 2 Episode 8
Yoga Nidra djúpslökun
Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins
More Info
Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins
Yoga Nidra djúpslökun
Jul 11, 2024 Season 2 Episode 8
Krabbameinsfélagið

Velkomin í Yoga Nidra, leidda djúpslökun.
Tilgangur hugleiðslunar er að vinna með slökun líkamans og fara inn í djúpa kyrrð og ró. Ólafur Yoga Nidra kennari hjá Míró/Svefn Jóga leiðir þessa hugleiðslu sem virkjar heilunnarmátt líkamans, losar um venjur og viðbrögð líkama og huga. Þú sleppir tökum á hugsunum og hverfur til bakgrunnsins þar sem þú hvílir í eigin vitund.

Þú opnar á orkuflæði líkamans, finnur aukið jafnvægi og hugarró tengt viðbrögðum og venjum daglegs lífs.

Hugleiðslan hentar til að draga úr streitu, hægja á hugsunum og bæta svefn. Taktu þennan tíma frá fyrir þig og komdu þér vel fyrir á rólegum stað þar sem þú verður ekki fyrir truflun, helst í liggjandi stöðu (eða sitjandi í stól) með lokuð augu, púða undir höfði og hnésbótum.

Hafðu yfir þér teppi eða sæng þar sem líkami þinn kólnar í Yoga Nidra.

Í Yoga Nidra djúpslökun reynir þú að sofna ekki, líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir. Ef þú sofnar, mundu að þú getur alltaf komið rólega til baka að rödd minni. Þér á fyrst og fremst að líða vel, þessi stund er aðeins fyrir þig.

Ólafur Sigvaldason er Yoga Nidra kennari og eigandi  Míró/Svefn yoga í Lífsgæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði. Hann hefur m.a. lokið framhaldsnámi í Yoga Nidra fræðum hjá Kamini Desai, I am Yoga Nidra og heldur hann reglulega námskeið í Lífsgæðasetrinu. Heimasíða Svefn yoga er svefnyoga.is.

Show Notes