Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
"Von Ráðgjöf - er podcast þar sem við hjónin miðlum persónulegri reynslu í bland við faglega af lífinu bæði í blíðu og stríðu vonandi meira í blíðu. Við nálgumst efnið sem sendiboðar sem boða von frekar en einhverskonar rannsóknarfræðimenn sem hafa grandskoðað öll akademísku ritin. Við störfum bæði i Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Baldur er menntaður Markþjálfi og fyrirtækja markþjálfi og Barbara er með b.ed., gráðu í grunnskólakennarafræðum og Fjölskyldufræðingur Ma-Diplómunám. Samanlagt eiga þau 7/8 börn eftir því hvernig talið er og 2 barnabörn. Útskýrum það nánar í þáttunum. Við vonum að þið hafið gott og gaman af því að hlusta.
Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
29. Gleði Færni 3 - 5
•
Von ráðgjöf - Það er til betri leið
•
Season 1
•
Episode 29
Við höldum áfram að dvelja við þetta frábæra viðfangsefni. Gleðin er eitthvað sem við getum þjálfað heilan okkar uppí að læra.
Við tölum um að móta tengsl fyrir tvo, skapa umhverfi þakklætis og fjölskyldubönd.
Við vonum að þú njótir þess að hlusta á þetta og endilega deila þessu með fólki!